Tillögur Velferðarvaktarinnar gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum
Á fundi Velferðarvaktarinnar í dag, 29. nóvember 2017, voru samþykktar 14 tillögur til stjórnvalda um aðgerðir til að auka hlutfall nemenda sem ljúka framhaldsskólanámi og hefur bréf með tillögunum verið sent mennta- og menningarmálaráðherra.
Hlutfall fullorðinna án framhaldsskólaprófs á Íslandi er hið hæsta meðal Norðurlandanna og það fimmta hæsta meðal OECD-ríkja eða um 30%. Brotthvarf úr framhaldsskólum á Íslandi er um 19%, en í Danmörku 8%, Svíþjóð 7%, Finnlandi 9% og Noregi 11%. Meðaltal brotthvarfs í Evrópu er 11%. Velferðarvaktin telur mikilvægt að sem flest ungmenni geti stundað nám við hæfi og þannig stuðlað að farsælu lífi til framtíðar. Hátt hlutfall brotthvarfs nemenda úr framhaldsskólum á Íslandi er því áhyggjuefni.
Tillögurnar verða sendar nýjum mennta- og menningarmálaráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, heilbrigðisráðherra og alþingismönnum. Einnig framkvæmdastjórum sveitarfélaga og nemendaráðum.