Frumvarpsdrög um breytingu á skaðabótalögum til umsagnar
Til umsagnar eru nú hjá dómsmálaráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um breytingu á skaðabótalögum. Unnt er að koma að athugasemdum við frumvarpið eigi síðar en 26. janúar næstkomandi.
Skaðabótalögin eru að stofni til frá árinu 1993. Litlar breytingar hafa verið gerðar á lögunum frá árinu 1999. Lengi hefur verið rætt um nauðsyn þess að endurskoða ýmis atriði skaðabótalaganna. Frumvarpið felur ekki í sér endurskoðun á öllum þeim atriðum sem bent hefur verið á að þarfnist endurskoðunar heldur eru hér lagðar til breytingar sem ráðuneytið telur samhljóm um að óhjákvæmilegt væri að endurskoða hið fyrsta.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem varða forsendur margfeldisstuðuls, breytingar á lágmarks- og hámarksárstekjum, vísitölutengingu fjárhæða og frádráttarreglum vegna greiðslna í lífeyrissjóð.
Frumvarpið vann Eiríkur Jónsson prófessor. Jafnframt kom að verkinu ráðgjafahópur sem skipaður var fulltrúum frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Lögmannafélagi Íslands, Sjálfsbjörgu, Öryrkjabandalaginu og Sjúkratryggingum Íslands. Þá gerði Vigfús Ásgeirsson kostnaðargreiningu á frumvarpinu.