Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2018 Innviðaráðuneytið

Umhverfis- og auðlindaráðherra á ferð um Vestfirði

Frá fundi umhverfis- og auðlindaráðherra á Patreksfirði í dag.  - mynd

Þriggja daga ferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um Vestfirði hófst í dag. Í ferðinni hittir ráðherra m.a. fulltrúa sveitarstjórna, atvinnulífs, umhverfisverndarsamtaka, starfsmenn stofnana og heimafólk.

Ráðherra vill með heimsókninni kynna sér þau mál sem eru í deiglunni á landssvæðinu er tengjast málefnasviðum umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Má þar nefna skipulagsmál, raforkuöryggismál, náttúruvernd, samgöngumál, fiskeldi og fleira.

Ferðina hóf ráðherra í dag á Bíldudal þar sem hann kynnti sér fiskeldismál áður en hann fundaði á Patreksfirði með sveitarstjórnarfulltrúum frá Vesturbyggð og Tálknafirði.

Auk ofangreindra staða mun ráðherra hafa viðkomu í Reykhólasveit, Ísafirði og á Bolungarvík en á þessum stöðum fundar hann með fólki víðar af Vestfjörðum.  Að auki mun hann eiga fjarfund með sveitarstjórnarfólki í Árneshreppi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta