Ársskýrsla innflytjendaráðs 2017
Innflytjendaráð hefur skilað félags- og jafnréttismálaráðherra skýrslu um störf sín árið 2017 í samræmi við lög um málefni innflytjenda.
Starfandi innflytjendaráð var skipað af þáverandi ráðherra, Þorsteini Víglundssyni þann 23. mars 2017 en samkvæmt lögunum skal skipa í ráðið eftir hverjar alþingiskosningar.
Innflytjendaráð hefur á starfstíma sínum haldið átta fundi, auk tveggja funda með helstu hagsmuna- og samstarfsaðilum sem haldnir voru til þess að kynna þróunarsjóð innflytjendamála og ræða um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
Síðastliðið haust stóð innflytjendaráð fyrir samráðsfundi til að skapa samræðuvettvang þeirra sem tilgreindir eru sem framkvæmda- og samstarfsaðilar í aðgerðum sem kveðið er á um í framkvæmdaáætluninni. Auk umfjöllunar um aðgerðir áætlunarinnar voru á fundinum kynntar niðurstöður viðhorfskönnunar um innflytjendur sem gerð var í samræmi við áætlunina.
Í ársskýrslunni bendir innflytjendaráð á að auka þurfi upplýsingaflæði milli ráðuneyta, ríkisstofnana, sveitarstjórna og hagsmuna- og félagasamtaka við framkvæmd aðgerða í áætluninni og tryggja aðkomu þeirra að gerð tillagna að aðgerðum eins og áætlunin kveður á um: „Jafnframt er mikilvægt að efla utanumhald um framvindu verkefna og taka reglulega stöðumat á aðgerðum. Framkvæmd aðgerðanna hefur seinkað, ekki síst vegna tíðra breytinga innan stjórnsýslunnar. Nauðsynlegt er að tryggja framkvæmd allra aðgerðanna með fullnægjandi fjármagni á fjárlögum og hefur Fjölmenningarsetur nú sent beiðni um upplýsingar um stöðu verkefna til allra ábyrgðaraðila aðgerða framkvæmdaáætlunarinnar“ segir meðal annars í skýrslu innflytjendaráðs.
Tatjana Latinovic hefur gegnt formennsku í innflytjendaráði og hefur fallist á ósk Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um að halda formennskunni áfram, en hann mun á næstunni skipa fulltrúa ráðsins til setu fram að næstu alþingiskosningum, líkt og lög gera ráð fyrir.