Heimsþing kvenleiðtoga verða haldin á Íslandi næstu fjögur árin
Ísland hefur í níu ár mælst fremst meðal þjóða heims þegar kemur að stöðu kvenna og þegar við bætist vilji Íslands til gera enn betur og miðla af eigin reynslu til annarra þjóða, varð niðurstaðan sú að Ísland væri staður til að efna til alþjóðlegs samtals kvenleiðtoga um jafnrétti, breytingar og framtíðina.
Heimsþing kvenleiðtoga verður haldið í Hörpu í Reykjavík árlega í nóvember frá árinu 2018 til ársins 2021. Til heimsþingsins verður boðið alþjóðlegum kvenleiðtogum úr stjórnmálum; ríkisstjórnum og þjóðþingum sem eiga aðild að WPL; auk alþjóðlegra kvenleiðtoga úr viðskiptum, menningu, vísindum, tækni o.fl.
Yfirskrift heimsþinganna fjögurra verður WE CAN DO IT sem vísar til þess hvernig hægt er að ná fram breytingum og stuðla að betri heimi með því að tryggja aðkomu bæði kvenna og karla að ákvarðanatöku, stefnumótun og forystu.
Auk WPL Women Political Leaders, Global Forum og íslenskra stjórnvalda eru sérstakir
bakhjarlar Heimsþings kvenleiðtoga ; Icelandair, Íslandsbanki, Landsvirkjun, Eimskip, HB Grandi, Marel, Valitor, Alcoa, Efla, Deloitte og Capacent. Sérstakir samstarfsaðilar eru einnig; Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík; UN Women á Íslandi og Kvenréttindafélag Íslands.