Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2018 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráð SÞ

Utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráð SÞ - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra brýndi aðildarríki Sameinuðu þjóðanna til að virða grundvallarmannréttindi í ræðu sinni fyrir Mannréttindaráði SÞ í morgun. Hann lýsti yfir þungum áhyggjum af ofbeldinu í Sýrlandi og Jemen og skoraði á stjórnvöld í Filippseyjum að heimila óháðum eftirlitsmönnum að kanna þar ástand mannréttindamála.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra brýndi aðildarríki SÞ til að halda í heiðri grundvallarmannréttindi í ræðu sinni fyrir Mannréttindaráði SÞ í Genf í dag. Á sjötíu ára afmæli mannréttindayfirlýsingar SÞ væri ástandi þessara mála víða ábótavant.

„Þrátt fyrir miklar framfarir á þeim sjö áratugum sem liðnir eru frá samþykkt mannréttindayfirlýsingarinnar, til að mynda hvað varðar réttindi kvenna og hinsegin fólks, er ærin ástæða til að þrýsta áfram á víðtækari virðingu fyrir réttindum allra og sporna við afturför,“ sagði Guðlaugur Þór að loknum ræðuhöldum. „Við heyrum það hvarvetna að framlag Íslands á sviði mannréttinda skipti máli og Mannréttindaráðið er einn helsti vettvangurinn fyrir ríki að halda hvert öðru við efnið.”

Utanríkisráðherra gerði í ræðu sinni grein fyrir því að á síðasta ári hefði Ísland gert alvarlega athugasemd í ráðinu við ástand mannréttindamála á Filippseyjum og talað þar fyrir hönd næstum fjörutíu ríkja. Lýst hefði verið áhyggjum af þeim aðferðum sem stjórnvöld í landinu beittu í baráttu sinni gegn útbreiðslu fíkniefna og skorað á þau að gera allt sem þau gætu til að binda enda á ólögmæt dráp á fólki. Ennfremur voru stjórnvöld hvött til að sýna alþjóðastofnunum fulla samvinnu við að sækja til ábyrgðar þá sem brytu mannréttindi.

Utanríkisráðherra fagnaði því að Filippseyjar hefðu í kjölfar umfjöllunar í mannréttindaráðinu á síðasta ári gefið til kynna að þau væru tilbúin til að bregðast við athugasemdum annarra aðildarríkja SÞ. “Við viljum nota þetta tækifæri til að skora á stjórnvöld á Filippseyjum til að halda áfram á þessari braut og samþykkja án skilyrða eða takmarkana heimsókn frá erindreka Mannréttindaráðsins og sýna auk þess mannréttindafulltrúanum fulla samvinnu með því að taka án tafar á móti óháðri sérfræðinganefnd til að meta ástandið,“ sagði ráðherra en bætti því að ef filippeysk stjórnvöld héldu uppteknum hætti yrði Mannréttindaráðið að íhuga frekari viðbrögð, til dæmis með formlegri ályktun.

Utanríkisráðherra benti á að Filippseyjar eru um þessar mundir kjörnir meðlimir í ráðinu en 47 ríki sitja þar með atkvæðisrétt hverju sinni. Gera þyrfti þá kröfu að ríki sem ættu fulltrúa í ráðinu væru til fyrirmyndar í baráttunni fyrir mannréttindum og útbreiðslu þeirra. Sama ætti því við um lönd eins og Sádí-Arabíu, Venesúela og Egyptaland – sem einnig eiga sæti í Mannréttindaráðinu – en þar hafa verið gerðar alvarlegar athugasemdir við ástand mannréttindamála.

Utanríkisráðherra lýsti ennfremur þungum áhyggjum af hroðalegum þjáningum sem íbúar Sýrlands og Jemens hafa mátt þola undanfarin misseri. Nýjasta dæmið væru loftárásir á óbreytta borgara í Ghouta í útjaðri sýrlensku höfuðborgarinnar Damaskus. Koma þyrfti á varanlegum friði og veita nauðsynlega mannúðaraðstoð.

Utanríkisráðherra fjallaði í ræðu sinni einnig um viðleitni Íslendinga til að tala fyrir jafnrétti kynjanna á alþjóðavettvangi. Íslendingar reyndu að sýna gott fordæmi og þó að verk væri enn óunnið heima fyrir ynni núverandi ríkisstjórn markvisst að frekari úrbótum. Hann ræddi einnig réttindi hinsegin fólks og lýsti því yfir að Ísland stefndi að þátttöku í samtökunum Equal Rights Coalition, sem er nýr samstarfshópur meira en þrjátíu ríkja sem vilja beita sér fyrir grundvallarréttindum hinsegin fólks. 

  • Utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráð SÞ - mynd
  • Utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráð SÞ - mynd
  • Utanríkisráðherra ávarpar Mannréttindaráð SÞ - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta