Gjaldskrárbreytingar vegna heilbrigðisþjónustu 1. mars
Komugjöld í heilsugæslu haldast óbreytt en gjöld fyrir aðra heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 2,2% samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í dag. Líkt og verið hefur greiða börn yngri en 18 ára ekkert fyrir komu á heilsugæslustöð.
Breytingarnar sem kveðið er á um í reglugerðinni eru til samræmis við forsendur fjárlaga ársins sem gera ráð fyrir verðlagshækkunum sem nemur 2,2%.
Í nýja greiðsluþátttökukerfinu sem tók gildi 1. maí 2017 var sett hámarksþak á kostnað sjúkratryggðra þannig að enginn greiðir meira en nemur tilteknu hámarki á tólf mánaða tímabili. Lífeyrisþegar, þ.e. aldraðir og öryrkjar, greiða minna en almennir notendur. Sérstakar reglur gilda um börn og barnafjölskyldur. Með reglugerðinni hækka greiðsluþökin um 2,2%.
Í reglugerðinni er það nýmæli að sú heilbrigðisþjónusta sem veitt er á Heyrnar- og talmeinastöðinni er felld undir greiðsluþátttökukerfið. Í því felst að kostnaður sjúklinga sem þangað sækja heilbrigðisþjónustu reiknast til afsláttar líkt og önnur heilbrigðisþjónusta sem kveðið er á um í reglugerðinni.