Stuðningur við Bláan apríl - Styrktarfélag barna með einhverfu
Í dag á „bláa deginum“ 6. apríl veitti Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra 500 þúsund króna styrk af ráðstöfunarfé ráðherra til samtakanna Blár apríl, en blái dagurinn er nú haldinn í 5. skipti af samtökunum. Markmið þeirra er að auka vitund um og vekja athygli á einhverfu og safna fé til styrktar málefninu sem rennur óskert til verkefna er hafa bein áhrif á börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Átakið nú miðar að því að fræða og upplýsa almenning um einhverfu og auka þannig skilning, viðurkenningu og samþykki á því að við erum öll einstök og höfum okkar styrkleika og veikleika og á það við um einhverfa eins og alla aðra. Þegar ráðherra afhenti styrkinn þakkaði hann fulltrúum samtakanna þeirra góða framlag til aukins skilnings og umburðarlyndis í samfélaginu og sagði sannarlega ástæðu til að fagna fjölbreytileikanum.