Forsætisráðherra í viðtali á Radíó Stam
Tilgangur Radíó Stam er að vekja athygli á stami í samfélaginu. Katrín og Árni Heimir ræddu m.a. um íslensku þjóðarsálina, stöðu drengja í skólakerfinu og hvaða ráð hún myndi gefa sínum eigin sonum í ástarsorg.
Útvarpsverkefnið stendur til maíloka og þættina má einnig nálgast hér: https://www.mixcloud.com/radiostam/ og á Facebook síðu Radíó Stam þar sem viðtalið við forsætisráðherra er að finna: https://www.facebook.com/radiostam/