Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2018
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.
1. Gisting og fæði í einn sólarhring | kr. 35.900 |
2. Gisting í einn sólarhring | " 24.600 |
3. Fæði hvern heilan dag, minnst10 tíma ferðalag | " 11.300 |
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tímaferðalag | " 5.650 |
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2018. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2017 dags. 31. október 2017.
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.