Drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu til umsagnar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu sem m.a. fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuráðsins nr. 6/2008 um afnám einkaréttar á póstþjónustu. Umsagnarfrestur er til og með 21. júní nk.
Með frumvarpinu er m.a. lagt til að einkaréttur ríkisins á póstþjónustu, þ.e. bréfum undir 50 g, verði afnuminn og gerð grein fyrir inntaki alþjónustu. Sú leið sem lögð er til í frumvarpinu við að tryggja öllum landsmönnum lágmarkspóstþjónustu á hverjum tíma, svokölluð alþjónusta, miðar að því að póstþjónusta verði veitt á markaðslegum forsendum. Reynist það ekki kleift verði alþjónustan eigi að síður tryggð með þjónustusamningi, útboðsleið eða með því að útnefna alþjónustuveitanda.
Ísland hefur fyrir tilstilli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið innleitt tilskipanir og reglugerðir Evrópusambandsins er varða póstþjónustu frá árinu 1997 og 2002, fyrst á árinu 1998 og síðan á árunum 2003 og 2005. Þriðja pósttilskipun Evrópusambandsins, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/6/EB, sem nú er innleidd kveður á um afnám einkaréttar og opnun póstmarkaðar.
Umsagnir er unnt að senda í gegnum samráðsgátt stjórnvalda eða á netfangið [email protected].