Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí - desember 2018
Föstudaginn 22. júní síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2018.
Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 4.700 stk., á meðalverðinu 79 kr./stk. Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 20 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.
Fjögur tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 6.120 stk., á meðalverðinu 80 kr./stk. Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 20 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.
Fjögur tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 12.800 stk., á meðalverðinu 33 kr./stk. Hæsta boð var 51 kr./stk. en lægsta boð var 10 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 47 kr./stk.
Fimm umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 244.750 stk. á meðalverðinu 25 kr./stk. Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 5 kr./stk. Tilboði var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 36 kr./stk.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur júlí – desember 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
650 |
Húsasmiðjan Blómaval |
1.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf. |
Aðrar pottaplöntur júlí- desember 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
860 |
Húsasmiðjan Blómaval ehf. |
1.300 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf. |
Tryggðablóm júlí - desember 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
300 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf. |
5.000 |
Grænn markaður ehf. |
1.200 |
Samasem ehf. |
(Annars) afskorin blóm júlí – desember 2018
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
50.000 |
Blómagallerí hf. |
1.084 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf. |
21.687 |
Grænn markaður ehf |
45.979 |
Samasem ehf |