Hoppa yfir valmynd
18. september 2018 Matvælaráðuneytið

Tíu reglugerðir á sviði landbúnaðarmála felldar brott

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að fella úr gildi tíu reglugerðir á sviði landbúnaðarmála. Reglugerðirnar eru frá árunum 1986-2010 og eiga það sammerkt að vera orðnar úreltar eða skorta lagastoð.

Þessi ákvörðun er liður í átaki atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um einföldun regluverks og í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem mælt er fyrir um að átak verði gert í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings.

  • Reglugerð nr. 405/1986 um flokkun og mat á gærum
  • Reglugerð nr. 313/1991 um aðlögun fullvirðisréttar til framleiðslu sauðfjárafurða að innanlandsmarkaði, ásamt síðari breytingum
  • Reglugerð nr. 431/1996 um greiðslur úr fóðursjóði, ásamt síðari breytingum
  • Reglugerð nr. 522/1997 um innheimtu og ráðstöfun á verðskerðingargjöldum af kindakjöti
  • Reglugerð nr. 524/1998 um útflutning á kindakjöti, ásamt síðari breytingum
  • Reglugerð nr. 322/1999 um búnaðarmál
  • Reglugerð nr. 59/2000 um vörslu búfjár
  • Reglugerð nr. 743/2002 um búfjáreftirlit o.fl.
  • Reglugerð nr. 704/2005 um greiðslu verðmiðlunargjalds af kindakjöti
  • Reglugerð nr. 500/2010 um sérstakan stuðning við búvöruframleiðslu árin 2010-2012 vegna eldgoss í Eyjafjallajökli

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta