Hoppa yfir valmynd
15. október 2018 Matvælaráðuneytið

Landbúnaðarráðherrar Íslands og Kína undirrita samstarfsyfirlýsingu

Kristján Þór og Han Changfu  - mynd

Í dag átti Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fund í Reykjavík með Han Changfu landbúnaðarráðherra Kína. Í kjölfar fundarins undirrituðu ráðherrarnir samstarfsyfirlýsingu um samstarf landanna á sviði landbúnaðar- og matvælamála.

Nýlega undirritaði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, samning við kínversk stjórnvöld sem gera íslenskum bændum kleift að hefja útflutning á lambakjöti til Kína. Á næstunni standa vonir til þess að sambærilegir samningar verði undirritaðir fyrir lax, mjöl og lýsi.   

Kínverski landbúnaðarráðherrann kom með sendinefnd sinni hingað til lands á laugardaginn. Þann dag heimsótti hann landbúnaðarsýninguna í Laugardalhöll. Á sunnudaginn fór kínverski ráðherrann í kynnis- og útsýnisferð um Suðurland og kynnti sér m.a. starfsemi kúabúa, garðyrkjustöðva og ferðaþjónustu.  Auk fundar með íslenska starfsbróður sínum í dag hefur kínverski ráðherrann heimsótti Stofnfisk og Bláa lónið.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta