Jarðfræðikennari
Framhaldsskólakennari
Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir eftir framhaldsskólakennara til afleysingar í eitt ár.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fulla kennslu í jarðfræði.
Hæfnikröfur
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi háskólanám í jarðfræði og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Einnig góða almenna tölvukunnáttu, sé skipulagður og hafi færni í mannlegum samskiptum. Þá er góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi eða í netfang skólameistara og skulu afrit prófskírteina og starfsferilskrá fylgja umsókn. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.11.2018
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Friðriksdóttir - [email protected] - 5944000
Helgi Kristjánsson - [email protected] - 5944000
MK Kennsla í dagskóla
Digranesvegi 51
200 Kópavogur
Sækja um starf
Starfssvið: