Hoppa yfir valmynd
22. október 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs – frumvarp í opið samráð

Drög að frumvarpi mennta- og menningarmálaráðherra um stöðu samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er komið í opið samráð í Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið er liður í tillögum starfshóps sem ráðherra skipaði í kjölfar #églíka-yfirlýsinga íþróttakvenna sl. vetur og kynntar voru í sumar.

Markmið nýrra laga er að íþrótta- og æskulýðsstarf sé öruggt umhverfi þar sem börn, unglingar og fullorðnir, óháð kyni eða stöðu að öðru leyti, geta stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða réttar síns vegna kynferðislegrar áreitni og ofbeldi sem þar koma upp án ótta við afleiðingarnar. Því er lagt til að heildarlög verði sett um þetta efni. Einnig er ráðgert að bætt verði við ákvæði í íþróttalög þar sem mælt er fyrir um að óheimilt verði að ráða einstaklinga til starfa hjá íþróttafélögum eða þiggja framlag þeirra sem sjálfboðaliða, hafi þeir hlotið refsidóm fyrir brot gegn ákvæðum kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Sama gildir um þá sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Slíkt ákvæði hefur verið í æskulýðslögum, nr. 70/2007, frá árinu 2007.

Sjá kynningu frumvarpsdraga í Samráðsgátt.

Markmið Samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila. Þar er á einum stað hægt að finna öll mál ráðuneyta sem birt hafa verið til samráðs við almenning. Öllum er frjálst að senda þar inn umsagnir eða ábendingar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta