Breytt skipan ráðuneyta og tilflutningur verkefna um áramót
Þann 1. janúar 2019 taka til starfa ný ráðuneyti heilbrigðismála og félagsmála við uppskiptingu velferðarráðuneytisins sem verður lagt niður frá sama tíma. Þingsályktunartillaga um breytta skipan ráðuneyta var samþykkt á Alþingi í gær.
Stjórnarmálefni velferðarráðuneytisins munu að mestu skiptast á milli heilbrigðisráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins með sama hætti og þau skiptast nú á milli heilbrigðisráðherra og félags- og jafnréttismálaráðherra samkvæmt gildandi forsetaúrskurði nr. 85/2017 um skiptingu starfa ráðherra. Það sem breytist frá gildandi forsetaúrskurði er að jafnréttismál flytjast til forsætisráðuneytis og málefni mannvirkja sem nú heyra undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið flytjast til félagsmálaráðuneytisins. Embættistitill félags- og jafnréttismálaráðherra breytist og verður félags- og barnamálaráðherra. Markmiðið með breyttum embættistitli er að undirstrika aukna áherslu stjórnvalda á málefni barna og ungmenna.
Við uppskiptingu velferðarráðuneytisins hefur m.a. verið horft til þess hve stórt það er. Ábyrgð þess nær til tíu af þeim 34 málefnasviðum sem skilgreind eru í fjármálaáætlun stjórnvalda, sum þeirra eru mjög stór og umsýsla ráðuneytisins tekur til rúmlega helmings af öllum útgjöldum A-hluta ríkissjóðs. Mat stjórnvalda er að með uppskiptingunni megi tryggja markvissari forystu og stjórnsýslu í málaflokkum hvors ráðuneytis.