Framlög úr Jöfnunarsjóði vegna þjónustu við fatlað fólk tæpir fimmtán milljarðar árið 2018
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt meðfylgjandi tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða áætlun um úthlutanir framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2018. Heildarframlög nema 14.970 m.kr.
Breytingar frá 2. áætlun ársins 2018 eru til komnar vegna breytinga á reiknaðri stuðningsþörf út frá fyrirliggjandi gögnum. Helstu ástæður breyttrar stuðningsþarfar eru:
- Nýliðun á árinu 2018.
- Framkvæmd endurmats á núverandi SIS mati.
- Aðrar breytingar í gagnagrunni, þ.m.t. andlát einstaklinga og kostnaðarbreytingar á þjónustu við einstaklinga.
Endanleg áætlun almennra framlaga vegna málefna fatlaðs fólks 2018