Hækkun bóta almannatrygginga um áramót
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað tíu reglugerðir um hækkun bóta almannatrygginga 1. janúar 2019. Hækkun bóta nemur 3,6% í samræmi við launa- og verðlagsuppfærslur fjárlaga og tekur til lífeyristrygginga, félagslegrar aðstoðar, foreldragreiðslna og greiðslna til lifandi líffæragjafa.
Eftirfarandi eru upplýsingar um bótaflokkana og reglugerðirnar sem um ræðir:
- Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019.
3,6% hækkun allra bóta lífeyristrygginga og félagslegrar aðstoðar, auk meðlagsgreiðslna og ráðstöfunarfjár.
- Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019.
Viðmið vegna framfærsluuppbótar örorkulífeyrisþega og þak á tekjuviðmið vegna frekari uppbótar hækka um 3,6%. Efri tekjumörk breytast vegna hækkaðra bótafjárhæða (afleiddar stærðir).
- Reglugerð um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.
Heimilisuppbót hækkar um 3,6%. Viðmið vegna framfærsluuppbótar örorkulífeyrisþega hækkar um 3,6%. Þak á tekjuviðmið vegna frekari uppbótar hækkar um 3,6%. Breytingar eru gerðar á 5. gr. vegna nýlegra breytinga á lögum um tekjuskatt um skattleysi uppbóta á lífeyri.
- Reglugerð um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2019.
Eingreiðslur (orlofs- og desemberuppbætur) til ellilífeyrisþega hækka um 3,6%. Eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega nema ákveðnu hlutfalli af fjárhæð tekjutryggingar og heimilisuppbótar.
- Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
Uppbót vegna reksturs bifreiðar hækkar um 3,6%.
- Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Dagpeningar vegna dvalar utan stofnunar eða heimilis og ráðstöfunarfé til heimilismanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hækka um 3,6%. Efra tekjumark ráðstöfunarfjár hækkar um 3,6%.
- Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2019 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Fjárhæðir greiðslna hækka um 3,6% og frítekjumark sömuleiðis.
- Reglugerð um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2019 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.
Fjárhæðir hækka um 3,6%.
- Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
Fjárhæðir hækka um 3,6%.
- Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.
Fjárhæðir hækka um 3,6%. Hámarksfjárhæð hækkar úr 520.000 kr. í 600.000 kr.