Framfaraspor stigið með fagráði eineltismála grunn- og framhaldsskóla
„Það hefur sýnt sig hversu mikilvægu hlutverki fagráð eineltismála sinnir fyrir skólasamfélagið, bæði með ráðgjöf og við úrlausn erfiðra mála. Það er mikið framfaraspor að ráðið muni nú einnig liðsinna í málum er tengjast framhaldsskólunum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum að fengnum tillögum frá Menntamálastofnun. Það er skipað þremur aðalmönnum og þremur varamönnum sem hafa þekkingu, menntun og reynslu sem nýtist við úrlausn mála. Í ráðinu nú sitja Sigríður Lára Haraldsdóttir, Bóas Valdórsson og Sigrún Garcia Thorarensen. Fagráðið starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis, en Menntamálastofnun annast umsýslu þess.
Verklagsreglur fagráðs grunn- og framhaldsskóla eru unnar í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis og Menntamálastofnunar með aðkomu nýskipaðs fagráðs og koma þær í stað fyrri verklagsreglna frá 2016 um fagráð eineltismála í grunnskólum.