Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur stærðfræðinnar: fagráð um stærðfræðikennslu

Unnið er að stofnun fagráðs um fyrirkomulag stærðfræðikennslu. Slíku fagráði verður meðal annars ætlað að skoða hvernig betur má stuðla að samfellu í stærðfræðikennslu milli skólastiga en ljóst er að sumir nemendur búa yfir of lítilli hæfni í stærðfræði þegar komið er á framhaldsskólastig. Fagráðið mun taka mið af niðurstöðum úttektar sem gerð var á stærðfræðikennslu í framhaldsskólum í tíð Illuga Gunnarssonar sem mennta- og menningarmálaráðherra en þar kemur fram að mikilvægt sé að auka eftirlit með kennslu og árangri í stærðfræðinámi, meta gæði námsgagna og námsefnisþörf og auka faglegt samstarf bæði framhaldsskóla innbyrðis og samráð milli skólastiga.

Einnig er stefnt að því að Menntamálastofnun verði falið að skima og prófa nemendur í stærðfræði á hliðstæðan hátt og nú er gert með læsi í lesfimiprófum.

„Við vitum að það eru sóknarfæri í því að efla stærðfræðikennslu á öllum skólastigum og auka samráð og samstarf milli þeirra. Við þurfum að nálgast þetta mál heildstætt og skoða til dæmis framboð á námsefni og námsgögnum og huga að menntun stærðfræðikennara. Það er nú þegar fjölþætt vinna í gangi innan ráðuneytisins sem þessu tengist en fagráðið verður mikilvægur ráðgefandi aðili. Það er komin góð reynsla á átaksverkefni eins og Þjóðarsáttmála um læsi og ég sé fyrir mér að við getum nýtt það besta úr þeirri nálgun til þess að auka árangur íslenskra nemenda í stærðfræði,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Degi stærðfræðinnar er fagnað í dag, fyrsta föstudag febrúarmánaðar, en samtök stærðfræðikennara, Flötur, hafa m.a. hvatt skóla til þess að nýta þann dag til þess að kynna og vinna með stærðfræðileg viðfangsefni á skapandi og skemmtilegan hátt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta