Lögfræðileg úttekt um kaup sjúkratrygginga á heilbrigðisþjónustu
Gerð hefur verið úttekt á framkvæmd og málsmeðferð velferðarráðuneytisins vegna samninga Sjúkratrygginga Íslands um kaup á heilbrigðisþjónustu sem veitt er af sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum. Úttektin var gerð að beiðni heilbrigðisráðherra í ljósi þeirra álitamála sem fjallað var um í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 18. september 2018.
Hluti af verkefninu fólst í úttekt á því hvernig Sjúkratryggingar Íslands stóðu að framkvæmd við gerð samninga og verklagi stofnunarinnar við að ákveða hvernig sérgreinalæknar voru teknir inn á samninga. Vert er að geta þess að samningar Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna runnu út um áramótin og þar af leiðandi er ekki unnið lengur á grundvelli þeirra.
Helstu þættir sem úttektin tekur til eru:
- Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 18. september 2018.
- Eftirlit ráðherra með Sjúkratryggingum Íslands samkvæmt Stjórnarskrá og öðrum lögum.
- Ábyrgð ráðherra og hlutverk Sjúkratrygginga Íslands.
- Undirbúning nýrra samninga og verklok.
- Kostnað við sjúkratryggingar samkvæmt ákvörðun Alþingis.
- Framkvæmd og málsmeðferð ráðuneytisins vegna ákvörðunar um að stöðva skráningu nýrra lækna inn á samninginn.
Þótt úttektin feli í sér lögfræðilega athugun á samningsformi sem ekki er lengur starfað eftir er horft til þess að draga megi af henni ýmsan lærdóm sem muni nýtast við gerð og framkvæmd samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu í framtíðinni.
Kristín Benediktsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, gerði úttektina.