Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2019 Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun kennd við Halldór Laxness

Halldór Laxness - myndJón Kaldal
Tillaga forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra um að ríkisstjórnin veiti tvær milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af verðlaunafé vegna nýrra alþjóðlegra bókmenntaverðlauna sem kennd verða við Halldór Laxness var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Tilefnið er ekki síst það að hundrað ár eru nú liðin frá því að Halldór Laxness gaf út sína fyrstu skáldsögu, Barn náttúrunnar. Verðlaunin verða veitt virtum erlendum rithöfundi fyrir endurnýjun sagnalistar og afhent á Bókmenntahátíð í Reykjavík, nú fyrst í apríl 2019 en síðan annað hvert ár eða árin 2021, 2023, 2025 og 2027.

Forsætisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðherra, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Forlagið, sem er útgefandi verka Halldórs Laxness, og Gljúfrasteinn munu standa að hinum alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum. Þá verður valnefnd skipuð einum fulltrúa forsætisráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Íslandsstofu, einum fulltrúa Bókmenntahátíðar, Forlagsins og Gljúfrasteins og þeim höfundi sem síðast hlaut verðlaunin. Ný nefnd verður skipuð í kjölfar hverrar Bókmenntahátíðar og val hennar mun liggja fyrir sex mánuðum fyrir afhendingu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta