Félagsleg velferð innflytjenda á Íslandi
Félagsvísar hafa verið gefnir út árlega frá árinu 2012 á grundvelli samnings sem velferðarráðuneytið gerði við Hagstofu Íslands. Í sérhefti félagsvísa um innflytjendur birtir Hagstofa Íslands í fyrsta sinn sérstaka umfjöllun um félagslega velferð innflytjenda. Hlutfall innflytjenda á Íslandi hefur aldrei verið hærra en árið 2018 þegar það var 12,6% mannfjöldans og þar með orðið svipað því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Innflytjendur eru fjölbreyttur hópur sem kemur hingað til lands af ýmsum ástæðum; svo sem vegna fjölskyldutengsla, til þess að mennta sig eða vinna. Einnig er um að ræða einstaklinga á flótta.
Hér má sjá sérhefti félagsvísa um velferð innflytjenda (af vef Hagstofunnar)