Ferðumst saman - morgunverðarfundur um almenningssamgöngur milli byggða
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið býður til morgunverðarfundar um almenningssamgöngur milli byggða landsins fimmtudaginn 28. febrúar. Á fundinum verður fjallað um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.
Fundurinn er opinn öllum og verður haldinn í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10. Fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.
Dagskrá:
- Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur fundinn.
- Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
„Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almenningssamgöngukerfi milli byggða.“ - Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.
„Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina.“ - Annette Skaarnæs, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá EnTur í Noregi
„Entur – connecting public transport across Norway.“ - Pallborðsumræður með fyrirlesurum
- Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.