Hoppa yfir valmynd
7. mars 2019 Forsætisráðuneytið

Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnir síðari áfanga starfsins

Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis - mynd

Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis kynnti afrakstur vinnu sinnar í síðari áfanga nefndarstarfsins á blaðamannafundi í dag í Þjóðminjasafninu. Eiríkur Jónsson, prófessor og formaður nefndarinnar, sá um kynninguna og svaraði spurningum fjölmiðla að kynningu lokinni.

Nefndin skilaði fjórum frumvörpum til ráðherra sem bætast í hóp fimm frumvarpa sem nefndin vann í fyrri áfanga nefndarstarfsins. Nefndin hefur nú lokið verkefnum sínum samkvæmt skipunarbréfi en forsætisráðherra hyggst jafnframt fela nefndinni að gera tillögur til stjórnvalda um hvernig bregðast megi við upplýsingaóreiðu á grundvelli lýðræðislegra grundvallarreglna.

Frumvörpin eru birt í samráðsgátt stjórnvalda og er efnt til tveggja vikna opins samráðs um efni þeirra.

  1. Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum, nr. 140/2012, með síðari breytingum, og öðrum lögum (útvíkkun gildissviðs upplýsingalaga o.fl.).
  2. Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, með síðari breytingum (lögbann á tjáningu).
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, með síðari breytingum (endurkröfur blaðamanna og fjölmiðlaveitna)

Frumvörpin heyra undir forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra.

Í nefndinni sátu: Eiríkur Jónsson, prófessor, formaður, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, varaformaður, Birgitta Jónsdóttir, stjórnarformaður International Modern Media Initiative (IMMI), Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Rut Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Þorgeir Ólafsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (fram til 11. janúar sl. Elísabet Pétursdóttir). Með nefndinni starfaði Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta