Afhending trúnaðarbréfs í Kenía
Þann 12. mars afhenti Unnur Orradóttir Ramette, Uhuru Muigai Kenyatta, forseta Kenía, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í landinu með aðsetur í Kampala.
Eftir athöfnina ræddu þau samskipti landanna á sviði jarðhita, en íslenskar stofnanir og fyrirtæki hafa verið virk á mörgum sviðum jarðhitanýtingar í Kenía um árabil, bæði opinberar stofnanir og íslensk fyrirtæki. Jarðhitaskólinn hefur jafnframt verið mjög virkur í starfi í Kenía, tekið yfir 120 Keníabúa í þjálfun á Íslandi og haldið námskeið í Kenía á jarðhitasviðinu. Einnig hefur skólinn komið að uppbyggingu á þekkingar,- og þjálfunarmiðstöð í Kenía, sem ætlað er að þjóna löndum við afrísku sigdældina í framþróun jarðhitanýtingar, en Kenía er í dag leiðandi í jarðhitanýtingu í Afríku.
Þá ræddu þau jafnréttis,-og mannréttindamál og stjórnmál í álfunni og hvernig mætti auka tvíhliða viðskipti landanna.
Við þetta tilefni færði Unnur forseta Kenía samúðarkveðjur vegna flugslyssins í Eþíópíu á sunnudaginn. 32 kenískir ríkisborgarar voru um borð í flugvél Ethiopian Air sem fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Addis Ababa á leið sinni til Naíróbí.