Bein útsending á fimmtudagsmorgun frá málþingi um áhættumat erfðablöndunar
Horfa á beina útsendingu
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til málþings um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi, fimmtudaginn 14. mars kl. 9:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal á 1. hæð í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4.
Bein útsending verður frá málþinginu á vef Stjórnarráðsins.
Hafrannsóknastofnun gaf áhættumatið fyrst út í júlí 2017. Ráðherra lagði nýlega fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi og þar er lagt til að áhættumatið verði lögfest og jafnframt að það verði tekið til endurskoðunar í sumar. Á málþinginu verður farið yfir áhættumatið og þá vinnu sem liggur að baki því auk þess sem rædd verða næstu skref í þróun þess.
Dagskráin er með eftirfarandi hætti:
- 09:00: Opnun málþings. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- 09:10: Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun og einn höfunda áhættumatsins
- 09:25: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
- 09.35: Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga
- 09.45-10:30: Pallborðsumræður.
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, alþingismaður og 1. varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis
- Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ
- Jón Kaldal, talsmaður Icelandic Wildlife Fund
- Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður og formaður atvinnuveganefndar Alþingis
- Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og einn höfunda áhættumatsins