Kynjamunur á mörgum sviðum samfélagsrekstrarins: Grunnskýrsla um kynjaða fjárlagagerð gefin út í fyrsta sinn
Grunnskýrsla um kynjaða fjárlagagerð sýnir að þó Ísland hafi náð langt í jafnréttismálum er mikið verk framundan fyrir stjórnvöld við að tengja kynjasjónarmið við ákvarðanatöku. Sem dæmi um niðurstöður úr skýrslunni sem nú er gefin út í fyrsta skipti má nefna að:
- Hefðbundnar samgönguáætlanir, skipulag og umferðarlíkön taka almennt ekki tillit til mismunandi ferðamynsturs karla og kvenna.
- Rannsóknir sýna að brottflutningur kvenna er eitt sterkasta einkenni dreifbýlla samfélaga í vanda.
- Fyrirkomulag virðisaukaskatts hefur kynjaáhrif af því að konur og karlar eru ólíkir neytendur. Greiningar sýna að undanþágur frá virðisaukaskatti eru oftar körlum í vil en konum.
- Karlar virðast síður sækja sér háskólamenntun en konur og greina má kynbundið mynstur í námsvali.
- Opinberir háskólar hafa verið að vinna að endurmati á matskerfi háskólanna og komið hefur í ljós að þar er að finna kynbundna slagsíðu körlum í vil meðal starfsfólks háskóla.
- Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu um heilsufar kvenna sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sendi frá sér árið 2016 er talið að staðalmyndir kynja og kynhlutverk ýti undir heilsufarsvanda kvenna frá unga aldri.
- Þörf karla fyrir dvöl á hjúkrunarheimili er metin meiri og konur bíða lengur eftir hjúkrunarrými. Skýrist það að hluta til af því að kvenkyns aðstandendur annast karla lengur heima við.
- Karlar/drengir eru í þó nokkrum meirihluta þeirra sem fá ávísað methylfenidat(ADHD lyfjum).
- Konur nota róandi, kvíðastillandi og slævandi lyf töluvert meira en karlar. Þá nota konur um tvisvar sinnum meira af þunglyndislyfjum en karlar.
- Konur eru í meira mæli með örorokumat vegna stoðkerfissjúkdóma, sérstaklega um og eftir miðjan aldur. Hjá körlum er aukning örorkumats meiri á meðal yngri aldurshópa, einkum vegna geðrænna vandamála.
- Í hópi einstæðra foreldra eru konur í miklum meirihluta viðtakenda húsnæðisbóta eða 87,4% á móti 12,6% karla.
Skýrslan var kynnt í ríkisstjórn fyrr í dag og var tekin ákvörðun um að ráðherrar styðji við áframhaldandi greiningu á sínum málaflokkum og tryggi að niðurstöðum jafnréttismats verði komið í farveg við vinnslu fjármálaáætlunar og fjárlagafrumvarps. Greint verður frá árangri sem vinnst í ársskýrslum ráðherra.
Ríkisstjórnin ákvað enn fremur að beina á næsta ári sérstaklega sjónum að kynjagreiningu á byggðamálum, samgöngum, atvinnuvegum og samkeppnissjóðum, án þess þó að horfa framhjá öðrum málaflokkum.
Grunnskýrsla um kynjaða fjárlagagerð er nú gefin út í fyrsta sinn í samræmi við fimm ára áætlun um kynjaða fjárlagagerð 2019-2023 sem samþykkt var í ríkisstjórn 26. október sl.
Skýrslunni er ætlað að varpa ljósi á þær áskoranir sem til staðar eru í jafnréttismálum og takast má á við með markmiðssetningu í fjármálaáætlun og fjárlagafrumvarpi. Samhliða útgáfu skýrslunnar er jafnframt opnað svæði sem birtir útdrátt úr allra helstu niðurstöðum greininganna.