Hoppa yfir valmynd
21. mars 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starfshópur um málefni nemenda með annað móðurmál en íslensku

Starfshópur um heildarstefnumörkun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku hefur tekið til starfa á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins og hitti Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hópinn á dögunum og ræddi áherslur og áskoranir sem efst eru á baugi nú um stundir.

„Það er ljóst að margir nemendur sem eiga annað móðurmál en íslensku eiga erfitt uppdráttar í íslensku skólakerfi og við því verðum við að bregðast hratt og örugglega. Við viljum finna leiðir til þess að íslenskir skólar geti betur mætt fjölbreyttari nemendahópum en áður. Þar er snemmtæk íhlutun afar mikilvæg, því fyrr sem nemendur fá stuðning og úrræði við hæfi – þeim mun meiri árangri þá þau,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Hlutverk starfshópsins er meðal annars að koma að stefnumótun í málaflokknum og gera tillögur að leiðum til úrbóta á námi og kennslu sem taki mið af fjölbreyttum hópi nemenda frá ólíkum menningarheimum.

Starfshópinn skipa:
Jóhanna Einarsdóttir formaður
Hulda Karen Daníelsdóttir fulltrúi Menntamálastofnunar
Dagbjört Ásbjörnsdóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar
Þórður Kristjánsson fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
Renata Emilsson Peskova fulltrúi Móðurmáls – samtaka um tvítyngi
Einar Hrafn Árnason fulltrúi Sambands íslenskra framhaldsskólanema
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir fulltrúi velferðarráðuneytis
Anna María Gunnarsdóttir fulltrúi Kennarasambands Íslands
Sigríður Ólafsdóttir fulltrúi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

Verkefnastjórn hópsins skipa auk Jóhönnu Einarsdóttur formanns þær Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta