Bankastjóri Þróunarbanka Evrópuráðsins í heimsókn á Íslandi
Bankastjóri Þróunarbanka Evrópuráðsins (CEB) Rolf Wenzel, var í heimsókn á Íslandi í vikunni og hitti hann fulltrúa hinna ýmsu opinberra aðila á meðal dvöl hans stóð. Rolf hitti fjármálaráðherra í gær og ræddu þeir um stöðu og horfur á Íslandi og mögulega samstarfsfleti hvað varðar fjármögnun verkefna í framtíðinni.
Ísland var meðal átta landa innan Evrópuráðsins sem voru stofnaðilar að bankanum árið 1956, en aðilar eru nú 40 talsins. Starfsemi bankans byggir á félagslegum markmiðum sem upphaflega beindust að því að fjármagna félagslegt íbúðarhúsnæði og annað sem tengdist aðstoð við flóttafólk og heimilislaust fólk í Evrópu eftir síðari heimsstyrjöld. Lántakendur bankans geta verið ríki, sveitarfélög eða opinber fyrirtæki og býður bankinn fjármögnun til verkefna á sviði menntunar, bættra lífsskilyrða, samgangna og umhverfisverndar. CEB hefur átt í ágætu samstarfi við Ísland í gegnum tíðina, nú síðast með lánveitingu til Lánasjóðs sveitarfélaga á árinu 2017, sem gerði lánasjóðnum kleift að fjármagna ýmis verkefni sveitarfélaga.