Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skýrsla starfshóps varðandi raforkumálefni garðyrkjubænda

Knútur Rafn Ármann, Pétur E Þórðarson, Gunnar Þorgeirsson, Ásmundur Friðriksson, Geir Guðmundsson og Ása María H. Guðmundsdóttir afhenda Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur skýrsluna - mynd

Starfshópur um raforkumálefni garðyrkjubænda hefur skilað skýrslu sinni til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þann. Starfshópurinn var skipaður 27. apríl 2018 og var ætlað að kortleggja þróun framleiðslukostnaðar garðyrkjubænda og hlut raforku í honum, þróun gjaldskrárbreytinga, taxta og niðurgreiðslna vegna raforkunotkunar garðyrkjubænda, kanna möguleika til aukinnar nýsköpunar, þróunarverkefna og samstarfs í greininni og skoða hvaða möguleikar og verðmæti kunni að felast í kolefnisfótspori garðyrkjunnar eða öðrum loftlagstengdum áherslum.

Skýrslan inniheldur tillögur að aðgerðum sem miða að aukinni nýsköpun og þróun í greininni en einnig tillögur er varða framkvæmd niðurgreiðslna raforku til garðyrkjubænda. Meðal tillagna starfshópsins eru endurskoðun á heildarfjárhæð niðurgreiðslna vegna raforkukostnaðar, endurskilgreining á mörkum niðurgreiðsluhlutfallsins, ítarlegri skilgreiningar í búvörusamningum um hvaða ræktun eigi rétt á niðurgreiðslu rafmagns til lýsingar, stofnun rannsókna- og þróunarsjóðs garðyrkjunnar sem myndi veita styrki til verkefna á sviði framleiðniaukandi nýsköpunar, nýrra umhverfisvænna ræktunaraðferða og þróunar orkusparandi tækni fyrir garðyrkju, áhersla á aukna notkun orkusparandi ljósgjafa og aðrar orkusparandi aðgerðir og kannaður fýsileiki þess að stofna Garðyrkjuklasa Íslands. Allar eru þessar tillögur með fyrirvara um fjármögnun.

Skýrsla starfshópsins verður tekin til frekari skoðunar og er hún m.a. mikilvægt framlag í matvælastefnu fyrir Ísland þar sem áherslu er lögð á uppruna matvæla og kolefnisfótspor við framleiðslu matvæla. Hér er um mikilvægt loftlagsmál að ræða og að sama skapi undirstrikar skýrslan fjölbreytta möguleika á sviði nýsköpunar og tækniþróunar innan íslenskrar garðyrkju.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta