Borgaraþjónustan ávallt til staðar
Hátt í 50 þúsund Íslendingar eru búsettir erlendis eða, nærri 14 prósent þjóðarinnar. Meginþorri þeirra er í löndum þar sem Ísland er með sendiskrifstofu. Þá eru ótaldir þeir sem eiga fasteignir erlendis og dvelja þar langdvöldum þótt föst búseta sé hér á landi.
Guðlaugur nefndi heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla sem dæmi: „Í aðdraganda mótsins var einnig lögð áhersla á að miðla upplýsingum til íslenskra stuðningsmanna landsliðsins svo að ferðalög þeirra gengju hnökralaust fyrir sig. Borgaraþjónustan stóð vaktina og leysti úr vanda þeirra sem til hennar leituðu í stóru og smáu.“
Sífellt fleiri leggja í ævintýraferðir á framandi slóðir og Íslendingar reiða sig í auknum mæli á ráðleggingar borgaraþjónustunnar á ferðum sínum erlendis. Íslendingar í neyð erlendis geta haft samband við borgaraþjónustuna hvenær sem er sólarhringsins, allt árið um kring í nýju neyðarnúmeri, +354-545-0-112.
Skýrslu utanríkisráðherra má lesa í heild sinni hér á Stjórnarráðsvefnum en jafnframt hefur verið gefið út sérstakt hefti með útdrætti úr skýrslunni. Fjölmargar tölulegar upplýsingar koma fram í skýrslunni sem settar eru fram á myndrænan hátt.