Félags- og barnamálaráðherra gerir samning við Árborg um móttöku flóttafólks
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, gerði á dögunum samning við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Árborgar, um móttöku flóttafólks frá Sýrlandi.
Samningurinn lýtur að móttöku, aðstoð og þjónustu við fimm flóttamenn á tímabilinu 2019-2021. Fólkið kom til landsins í maí síðastliðinn ásamt 42 öðrum flóttamönnum sem settust að á Hvammstanga og á Blönduósi. Fólkið er hingað komið fyrir tilstuðlan íslenskra stjórnvalda og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Er þetta í annað sinn sem Árborg tekur á móti flóttafólki í samstarfi við íslensk stjórnvöld og hefur myndast mikil þekking og reynsla hjá sveitarfélaginu við móttöku flóttafólks.
Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum aukið verulega við móttöku flóttafólks í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sveitarfélög hérlendis og Rauða krossinn á Íslandi, en aldrei hafa jafn margir einstaklingar verið á flótta í heiminum og nú. Í ár verður í heildina tekið á móti 75 einstaklingum. Annars vegar flóttafólki frá Líbanon sem kemur frá Sýrlandi og hins vegar flóttafólki frá Kenía sem kemur víðs vegar frá Afríku.
„Móttaka flóttafólks hér á landi hefur gengið vel og er um að ræða farsælt samstarf á milli sveitarfélaga, ríkis og Rauða krossins á Íslandi. Ég bind vonir við að svo verði áfram,“ segir Ásmundur Einar.