Bein útsending frá kynningarfundi um heilbrigðisstefnu á Vesturlandi
Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er haldinn á Akranesi kl. 17 – 19 í dag.
Dagskrá fundarins
- Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir stefnuna
- Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands – Sýn forstjóra.
- María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) – Áhrif heilbrigðisstefnu á hlutverk og starfsemi SÍ
- Pallborðsumræður. Auk frummælenda taka eftirtaldir þátt í pallborðsumræðum: Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi og Sveinbjörg Pétursdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Húnaþingi vestra.
Fundarstjóri er Björn Bjarki Þorsteinsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar.