Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Heimild til flutnings gæludýra í almenningsvögnum í umsagnarferli

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um hollustuhætti.

Fyrirhugaðar breytingar kveða á um að heilbrigðisnefnd geti heimilað að gæludýr séu leyfð í almenningsvögnum í þéttbýli að uppfylltum tilteknum skilyrðum, m.a. á hvaða tíma dags heimilt sé að ferðast með gæludýr í vögnunum, hvar gæludýr mega vera í vögnunum og hvernig umbúnaði dýra skuli háttað.

Gert er ráð fyrir að heimildin verði bundin við hunda og ketti sem skráðir eru í samræmi við samþykktir um hunda- og kattahald í hlutaðeigandi sveitarfélögum, sem og nagdýr, fugla, kanínur, froska, skrautfiska, skriðdýr og skordýr, enda sé heimilt að halda umrædd dýr á Íslandi. Séu gæludýr heimiluð skal hengja upp upplýsingar þess efnis á áberandi stað á vagninum sjálfum, innan sem utan, og auglýsa rækilega þær reglur og skilyrði sem farþegar og gæludýr þurfa að uppfylla.

Strætisvagnar Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu hafa frá 1. mars 2018 haft undanþágu frá reglum um að dýr megi ekki flytja í almennum farþegarýmum samgöngutækja. Undanþágan var veitt vegna verkefnis Strætós bs. um eflingu almenningssamgangna. Á grundvelli jákvæðrar reynslu af verkefninu er nú áformað að heimila í reglugerð flutning á gæludýrum að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.

Umsögnum um reglugerðadrögin skal skilað í Samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 13. september næstkomandi.

Breytingar á reglugerð um hollustuhætti á Samráðsgátt


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta