Horft til framtíðar – málþing um menntakerfið og heilbrigðisþjónustuna 5. september
Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs. Þetta verða viðfangsefni fundar sem heilbrigðisráðherra boðar til 5. september nk. Markmiðið er að fjalla um þessar mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Fundurinn verður haldinn í Veröld, húsi Vigdísar kl. 17. – 19. Umræðustjórar verða Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon sem fá til sín í sófaspjall marga góða gesti með víðtæka þekkingu og reynslu á þessum sviðum. Fundarstjóri verður Björg Magnúsdóttir. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.
Dagskráin
Dagskrá |
|
17.00 |
Setning fundarins |
Ávarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra |
|
17:10 |
Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni |
Alma D. Möller landlæknir flytur framsögu |
|
|
Sófaspjall: Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands (HÍ), Sandra Bryndísardóttir Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands og Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala |
17:50 |
Vísindi |
Engilbert Sigurðsson forseti læknadeildar HÍ flytur framsögu |
|
Sófaspjall: Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við HÍ, Sunna Snædal, formaður vísindasiðanefndar og Unnur Valdimarsdóttir prófessor við HÍ. |
|
18:20 |
Forysta til árangurs |
|
Sófaspjall: Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur. |
18:55 |
Heilbrigðisráðherra slítur fundi. |
Streymt verður beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg á vef heilbrigðisráðuneytisins www.hrn.is