Netógnir í nýjum heimi - ráðstefna um netöryggismál
Netógnir í nýjum heimi er viðfangsefni ráðstefnu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið heldur um netöryggismál. Ráðstefnan verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar fimmtudaginn 3. október í tilefni af evrópska netöryggismánuðinum í október. Allir eru velkomnir en skráning er á vef Stjórnarráðsins.
Á ráðstefnunni verður kynnt ný lagaumgjörð um netöryggismál og samhæfing þeirra á alþjóðavísu. Þá verður fjallað um baráttuna við netglæpi, netöryggisvitund ungs fólks, upplýsingaöryggi hjá hinu opinbera og netöryggi í fjórðu iðnbyltingunni. Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.
Dagskrá:
- 9:00 Ávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
- 9:10 Nýir tímar - ný umgjörð
Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
- 9:30 Netbrot, nálgun og sýn lögreglu
Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
- 9:50 Samhæfing í netöryggismálum – hlutverk PFS
Unnur Sveinbjarnardóttir, lögfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun
- 10:10 Kaffi
- 10:25 IPv6: Keyrum þetta af stað
Tryggvi Farestveit, forstöðumaður hýsingarlausna hjá Opnum kerfum
- 10:45 Tæknilegt líf ungra barna – byggjum traustan grunn
Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og SAFT
- 11:05 Straumurinn og upplýsingaöryggi á Stafrænu Íslandi
Vigfús Gíslason, tækniarkitekt og sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- 11:25 4. iðnbyltingin: Öld tækifæra – ef öryggið er í öndvegi
Sigurður Emil Pálsson, formaður Netöryggisráðs, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu