Hoppa yfir valmynd
18. október 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál

Gestir fundarins um rafræna fylgiseðla - myndHeilbrigðisráðuneytið

Norðurlandaþjóðirnar telja mikinn ávinning í því að innleiða rafræna fylgiseðla með lyfjum og vinna að því sameiginlega gagnvart Evrópusambandinu. Horft er til þess að rafrænir fylgiseðlar verði mikilvægur liður í því að sporna við lyfjaskorti og auka öryggi sjúklinga. Um þetta var fjallað á fjölmennum fundi íslenskra og erlendra sérfræðinga í Reykjavík í gær sem haldinn var í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum er eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar og einnig eitt af markmiðum ályktunar Alþingis um lyfjastefnu til ársins 2020. Undir forystu Íslands náðist samstaða meðal allra Norðurlandaþjóðanna um að fara þess á leit við Evrópusambandið að reglur verði endurskoðaðar þannig að þeim aðildarríkjum sem vilja og geta verði heimilt að nota rafræna fylgiseðla í staðinn fyrir prentaða fylgiseðla eins og nú er gert. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sendi í sumar erindi þessa efnis til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir hönd allra heilbrigðisráðherra Norðurlandanna.

Tryggja þarf sjúklingum upplýsingar sem þeir skilja

Á fundinum í gær voru m.a. kynntar niðurstöður viðamikillar evrópskrar rannsóknar sem Evrópuráðið stóð fyrir að frumkvæði Íslands um kosti og galla þess að innleiða rafræna fylgiseðla. Í stuttu máli fela niðurstöðurnar í sér að lyfsalar, læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk telur vandkvæðum bundið að tryggja að sjúklingar sem ekki hafa tungumál viðkomandi lands að móðurmáli fái fullnægjandi upplýsingar um þau lyf sem þeir þurfa á að halda. Núverandi fyrirkomulag tryggi því ekki sem skyldi rétta og örugga notkun sjúklinga á lyfjum. Um 88% svarenda telja að með rafrænum fylgiseðlum megi betur tryggja sjúklingum aðgengi að upplýsingum sem þeir geta skilið.

Margvíslegir kostir rafrænna fylgiseðla

Norðurlandaþjóðirnar horfa meðal annars til þess að ef heimilt verður að nota rafræna fylgiseðla í stað prentaðra muni það auðvelda þeim sameiginleg lyfjainnkaup þar sem markaðurinn verður stærri og þar með áhugaverðari kostur fyrir lyfjafyrirtækin. Með því megi sporna við lyfjaskorti, tryggja þannig betur öryggi sjúklinga, jafnframt því að ná hagstæðara innkaupaverði og lækka þar með lyfjaverð.

Með rafrænum fylgiseðlum er unnt að einfalda og bæta upplýsingagjöf til notenda. Þannig gætu sjúklingar fengið aðgang að fylgiseðlum (útprentuðum eða í snjalltækjum) á tungumáli sem hentar þeim og í leturstærð eftir þörfum.

Við núverandi aðstæður skapast vandamál ef breyta þarf fylgiseðlum, t.d. vegna nýrra upplýsinga um aukaverkanir sem mikilvægt er að koma til notenda. Þegar um slíkt er að ræða þarf að innkalla og umpakka eða farga þeim lyfjum sem búið er að dreifa í apótek. Með rafrænum fylgiseðlum er aftur á móti auðvelt að koma nýjum upplýsingum til notenda og innköllun pakkninga af þessum ástæðum óþörf.

„Ekki spurning um hvort, heldur hvenær“

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir innleiðingu rafrænna fylgiseðla hafa marga augljósa kosti og ef vel er að málum staðið séu þeir til þess fallnir að tryggja betur öryggi sjúklinga. „Lyfjamál eru flókinn málaflokkur og regluverkið er umfangsmikið enda snúast örugg lyf og rétt notkun þeirra um líf og heilsu fólks. En það er líka mikilvægt að regluverkið taki breytingum í samræmi við þróun samfélagsins, tækninýjungar og breyttar þarfir almennings. Í fjölmenningarsamfélögum nútímans og tæknivæddum heimi er ég sannfærð um að innleiðing rafrænna fylgiseðla sé eðlileg og nauðsynleg þróun. Spurningin er ekki hvort, heldur hvenær þetta verður að veruleika“ segir ráðherra.

  • Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál - mynd úr myndasafni númer 1
  • Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál - mynd úr myndasafni númer 2
  • Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál - mynd úr myndasafni númer 3
  • Innleiðing rafrænna fylgiseðla með lyfjum mikilvægt hagsmunamál - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta