Hoppa yfir valmynd
21. október 2019 Matvælaráðuneytið

Auglýsing til bæjar- og sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020.

Auglýsing til bæjar- og sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020. - myndSigurður Ólafsson / NordenOrg

Með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta, fyrir fiskveiðiárið 2019/2020, á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Bæjar-/sveitarstjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnarumdæmanna og annast þær öll samskipti við ráðuneytið, sem nauðsynleg eru vegna úthlutunarinnar.

Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020 er til 15. nóvember 2019. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Til greina við úthlutun byggðakvóta koma:

  1. Minni byggðarlög (viðmiðun er 2.000 íbúar þann 1. janúar 2019), sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og sem háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski. Skal sveitarstjórn gera ráðuneytinu ítarlega grein fyrir vanda byggðarlagsins sem talið er að rekja megi til samdráttar í sjávarútvegi á síðustu árum og fyrir þýðingu veiða og vinnslu botnfisks fyrir það byggðarlag.
  2. Byggðarlög sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim. Sveitarstjórnir skulu leggja fram gögn, sem sýna fram á að í tilteknu byggðarlagi hafi óvænt skerðing heildaraflaheimilda fiskiskipa sem gerð eru þaðan út og landað hafa þar afla, hafi haft veruleg neikvæð áhrif á atvinnuástand í viðkomandi byggðarlagi.

Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur ráðuneytið ákvörðun um hversu mikill byggðakvóti kemur í hlut einstakra byggðarlaga og tilkynnir bæjar-/sveitarstjórnum niðurstöðuna.

Ráðuneytið hefur gefið út reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2019/2020, nr. 675, 4. júlí 2019 og reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020, nr. 676, 4. júlí 2019 og eru bæjar- og sveitarstjórnarmenn hvattir til að kynna sér innihald þeirra.

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta