Frumvarp um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof í samráðsgátt
Frumvarp um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnafrestur er til 12. nóvember 2019.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að samanlagður réttur foreldra til fæðingarorlofs lengist úr níu mánuðum samkvæmt gildandi lögum í tólf mánuði og að lengingin komi til framkvæmda í tveimur áföngum. Annars vegar vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árinu 2020 og hins vegar vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2021 eða síðar.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er meðal annars gert ráð fyrir lengingu á rétti foreldra til fæðingarorlofs. Enn fremur kveða lífskjarasamningar á almennum vinnumarkaði, sem samkomulag náðist um í vor, á um að efla fæðingarorlofskerfið með því að lengja samanlagðan rétt foreldra til fæðingarorlofs. Þá kemur fram í fjármálaáætlun fyrir árin 2020–2024 að gert sé ráð fyrir að samanlagður réttur foreldra til fæðingarorlofs verði lengdur úr níu mánuðum í tólf mánuði og að lengingin komi til framkvæmda í tveimur áföngum á árunum 2020 og 2021.
„Ég hef lagt gríðarlega áherslu á að efla fæðingarorlofskerfið í heild. Hámarksgreiðslur hafa þegar verið hækkaðar og nú er komið að lengingunni. Samhliða fer fram heildarendurskoðun laganna sem lýkur á næsta ári. Ég gleðst yfir þessum framfaraskrefum og er þess fullviss að þær verði fjölskyldum og ekki síst börnum þessa lands til góða,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Tuttugu ár verða liðin frá gildistöku laganna árið 2020. Þau þóttu byltingarkennd á sínum tíma en nú þykir tímabært að taka þau til endurskoðunar. Ásmundur Einar hefur skipað nefnd í tengslum við þá heildarendurskoðun og er gert ráð fyrir að vinnu hennar ljúki í tíma til þess að hægt verði að leggja fram frumvarp á haustþingi að ári.