Beint streymi: Norræn ráðstefna um nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu
Norræn ráðstefna um nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu fer nú fram á Grand Hótel undir yfirskriftinni „The Working Conditions of Tomorrow.“
Á ráðstefnunni er fjallað um:
- breytingar á vinnumarkaði sem geta haft áhrif á vinnuumhverfi framtíðarinnar og starfsaðstæður
- hvernig hægt er að skapa góða vinnustaði sem stuðla að heilsu, öryggi og réttindum starfsfólks
- skipulegt samstarf þvert á landamæri og innanlands til þess að uppræta félagsleg undirboð og brotastarfsemi
Fyrirlesarar eru norrænir sérfræðingar í vinnuumhverfis-/vinnumarkaðsmálum og opinberum innkaupum sem og innlendir fyrirlesarar frá fyrirtækjum og stofnunum. Í lok
ráðstefnunnar verður pallborð með þátttöku aðila vinnumarkaðarins og annarra sérfræðinga.
Hér má nálgast dagskrá. Fullt er á ráðstefnuna en hægt er að fylgjast með beinu streymi á vef Vinnueftirlitsins.