Bein útsending frá heilbrigðisþingi
Heilbrigðisþing er haldið í dag. Á fjórða hundrað manns eru skráð á þingið og komast færri að en vilja. Hér er hægt að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu sem hefst kl. 9.00 með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
Dagskrá
Staður og stund: Hótel Hilton Reykjavík Nordica, 15. nóvember kl. 8.30 – 16.00
Umræðustjóri: Vilhjálmur Árnason heimspekingur
Fundarstjóri: Björg Magnúsdóttir
Drög að dagskrá:
8.30 Skráning og morgunhressing
9.00 Fundarstjóri Björg Magnúsdóttir
9.05 Opnunarávarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
9.15 Dr. Göran Hermerén:Prioritysetting: choices and values in healthcare. An importantdebate
9.45 – 10.25 Mannhelgi og virðing fyrir mannlegri reisn
Allir menn eru jafnir og eiga sama rétt til verndar lífs og viðhalds heilbrigðis.
Örerindi fulltrúa notenda:
Yngri notendur: Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Öryrkjabandalagið: Emil Thoroddsen.
Sjónarhóll: Sigurrós Á. Gunnarsdóttir.
Landsamtök eldri borgara: Þórunn H Sveinbjörnsdóttir.
Geðhjálp: Héðinn Unnsteinsson.
Henry Alexander Henrysson, heimspekingur: Mannhelgi og virðing fyrir mannlegri reisn.
10.25 KAFFIHLÉ
10.40 – 11.45 Þörf og samstaða
Þeir sem eru í brýnustu þörfinni fyrir heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma skulu ganga fyrir. – Gæta skal að rétti þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu, af hvaða ástæðum sem það er, og geta því ekki sjálfir leitað réttar síns eða varið hann.
Hildigunnur Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri á Sjúkrahúsinu á Akureyri: Áskoranir veitenda í heilbrigðisþjónustu.
Tryggvi Þorgeirsson, læknir og lýðheilsufræðingur ásamt Davíð O. Arnar, yfirlækni hjartalækninga á Landspítala: 21. aldar lausnir við langvinnum sjúkdómum: Heilbrigðistækni og fyrirbyggjandi læknisfræði.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri sviðs áhrifaþátta heilbrigðis við Embætti landlæknis: Lýðheilsa – mikilvægi heilsulæsis.
Páll Matthíasson, læknir og forstjóri Landspítala: Hvernig gerum við upp á milli ólíkra heilbrigðisþarfa í heimi skorts?
11.50 Umræður og pallborð – stjórnandi Vilhjálmur Árnason.
12.30 – 13.00 HÁDEGISVERÐUR
13.00 – 14.15 Hagkvæmni og skilvirkni
Heilbrigðisþjónustan skal vera markviss, árangursrík og eins hagkvæm og nokkur kostur er.
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands: Hagkvæmni og forgangsröðun.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs á Landspítala: Þarfir í sjöunda veldi.
Sunna Snædal, læknir og formaður vísindasiðanefndar: Forgangsröðun í þágu vísinda.
Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur og forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða: Hagkvæmni er siðferðileg nauðsyn.
Alma Möller landlæknir: Er minna meira? Hugvekja um sóun í heilbrigðisþjónustu.
14.30 Umræður og pallborð – stjórnandi Vilhjálmur Árnason.
15:10 Samantekt dagsins – Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Alma Möller landlæknir, Vilhjálmur Árnason og Henry Alexander Henrysson.
15.45 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra slítur heilbrigðisþingi.