Ráðuneytisstjóraskipti í forsætisráðuneytinu um næstu áramót
Við embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu tekur Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari, með vísan til heimildar í 36. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Bryndís er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti ríkissáttasemjara frá árinu 2015. Áður var hún starfsmannastjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss og rektor við Háskólann á Bifröst. Þá gegndi Bryndís þingmennsku fyrir Alþýðubandalagið og Samfylkinguna á árunum 1995 til 2005. Hún var áður lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands og starfsmaður nefndar í dómsmálaráðuneytinu um aðskilnað umboðsvalds og dómsvalds í héraði.
Forsætisráðuneytið vill við þessi tímamót þakka Ragnhildi fyrir afar vel unnin störf og ekki síst hennar framlag í tengslum við ýmsar stjórnsýsluumbætur og uppbyggingu á krefjandi tímum. Ragnhildur hefur gegnt embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu í rúman áratug en var áður ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu frá árinu 2004 og fulltrúi í sendiráðinu Brussel frá 2002 til 2004. Hún starfaði í heilbrigðisráðuneytinu frá árinu 1995 og á Alþingi frá árinu 1993. Ráðherrar sem Ragnhildur hefur unnið með í þremur ráðuneytum eru á annan tuginn.