Sýning í Brussel helguð starfi Uppbyggingarsjóðs EES
Opnuð var í vikunni sérstök sýning helguð EES Uppbyggingarsjóðnum í húsakynnum utanríkisþjónustu ESB (EEAS). Samanstendur sýningin af veggspjöldum sem gefa eiga mynd af hinu margbreytilega starfi sjóðsins í hinum fimmtán samstarfsríkjum hans innan ESB. Sýningarspjöldin, sem flest gefa mynd að einstökum verkefnum í samstarfsríkjunum, höfðu áður verið sett upp á torgi við Ráðhúsið í Osló og farið þaðan milli borga í Noregi.
Við athöfnina, sem um 80 manns sóttu, fluttu sendiherrar EES EFTA-ríkjanna, Íslands, Liechtensteins og Noregs, ávörp, auk Christian Leffler, staðgengils framkvæmdastjóra efnahags- og alþjóðamála hjá EEAS. Einnig var fulltrúum ungmennasamtaka frá Slóvakíu, sem viðstaddir voru, boðið að segja nokkur orð.
Stefnt er að því að sýningin verði í kjölfarið sett upp á fleiri stöðum í Brussel.
Ávarp Gunnars Pálssonar sendiherra Íslands má lesa hér.