Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

500 milljónir til Loftslagssjóðs – opnað fyrir umsóknir

Frá kynningu Loftslagssjóðs í dag. - mynd

Alls verður um 500 milljónum króna varið til Loftslagssjóðs á fimm árum og þar af verða 140 milljónir króna til ráðstöfunar í fyrstu úthlutun. Opnað var í dag fyrir umsóknir í Loftslagssjóð en stofnun hans er ein af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum. 

Fullt var út úr dyrum á kynningarfundi um Loftslagssjóð sem haldinn var í Norræna húsinu í hádeginu í dag. Um er að ræða nýjan samkeppnissjóð sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og hefur ráðherra falið Rannís umsjón með honum. Öllum er heimilt að sækja um í sjóðinn og er opið fyrir umsóknir til 30. janúar n.k.

„Til að takast á við loftslagsvána þurfum við margs konar lausnir – við þurfum nýsköpun og þess vegna er dagurinn í dag stór dagur,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Við höfum lagt mikla áherslu á nýsköpun.“

Á fundinum var farið yfir áherslur stjórnar Loftslagssjóðs fyrir fyrstu úthlutun, sem og umsóknarferlið. Boðið er upp á tvær styrktegundir og eru styrkir veittir til eins árs. Annars vegar er um að ræða styrki til kynningar og fræðslu um loftslagsmál og getur styrkupphæð verið allt að 5 milljónir króna. Hins vegar er um að ræða styrki til nýsköpunarverkefna en þeim er m.a. ætlað að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun. Nýsköpunarstyrkir geta verið allt 10 milljónir króna og numið allt að 80% af kostnaði verkefnis.

Stjórn Loftslagssjóðs skipar fagráð sem metur styrkhæfi umsókna. Meðal þess sem haft verður til hliðsjónar eru jákvæð áhrif verkefnisins á loftslag, hvort það hafi jákvæð samfélagsleg áhrif, nýnæmi verkefnisins og hvort það muni nýtast víða í samfélaginu.

Á heimasíðu Rannís má nálgast allar nánar upplýsingar um Loftslagssjóð, úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð. Ítarleg handbók Loftslagssjóðs hefur auk þess verið sett á netið.

Fjölmenni var á fundinum.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta