Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.
Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1076/2019, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2020.
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
Tollskrárnr.: |
stk. |
% |
kr./stk. |
||
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar: |
|||||
0602.9091 |
Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna |
01.01.-30.06.20 |
2.200 |
30 |
0 |
Aðrar: |
|||||
0602.9093 |
Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna |
01.01.-30.06.20 |
3.000 |
30 |
0 |
Lifandi: |
|||||
0603.1100 |
Rósir |
01.01.-30.06.20 |
2.000 |
30 |
0 |
0603.1400 |
Tryggðablóm (Chrysanthemums) |
01.01.-30.06.20 |
9.000 |
30 |
0 |
0603.1909 |
Annars (afskorin blóm) |
01.01.-30.06.20 |
166.250 |
30 |
0 |
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 10. desember 2019.