Embætti ríkissáttasemjara laust til umsóknar
Félagsmálaráðuneytið hefur auglýst embætti ríkissáttasemjara laust til umsóknar. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálráðherra, mun skipa í embættið til fimm ára. Umsóknir verða metnar af sérstakri ráðgefandi hæfnisnefnd sem ráðherra skipar.
Í auglýsingunni segir að ríkissáttasemjari starfi á grundvelli laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, með síðari breytingum. Hann annast sáttastörf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga þeirra hins vegar. Skal þess því gætt að afstaða hans sé slík að telja megi hann óvilhallan í málum launafólks og atvinnurekenda, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Enn fremur er lögð áhersla á forystuhæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum.
Þá segir að umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skuli berast félagsmálaráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða á starfatorg.is Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019.
Ráðuneytið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um embættið.