Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2020
Þriðjudaginn 17. desember 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2020 sbr. reglugerð nr. 1076/2019.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.800 stk., á meðalverðinu 118 kr./stk. Hæsta boð var 150 kr./stk. en lægsta boð var 75 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 130 kr./stk.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 3.500 stk., á meðalverðinu 131 kr./stk. Hæsta boð var 150 kr./stk. en lægsta boð var 99 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 137 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 5.000 stk., á meðalverðinu 56 kr./stk. Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 51 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 60 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 15.000 stk., á meðalverðinu 43 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 46 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 281.250 stk. á meðalverðinu 30 kr./stk. Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2020
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
2.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
200 |
Grænn markaður ehf |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2020
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
2.500 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
500 |
Grænn markaður ehf |
Rósir janúar – júní 2020
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
2.000 |
Garðheimar–Gróðurvörur ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2020
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
1.000 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
8.000 |
Samasem ehf |
(Annars) afskorin blóm janúar – júní 2020
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
14.250 |
Garðheimar-Gróðurvörur ehf |
20.000 |
Grænn markaður ehf |
132.000 |
Samasem ehf |
Reykjavík, 18. desember 2019