Hvatt til stillingar í Mið-Austurlöndum
Stigmögnun spennu í Mið-Austurlöndum var umfjöllunarefni í sameiginlegri ræðu Norðurlanda í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir helgi þar sem hvatt var til stillingar og að friðsamlegra lausna yrði leitað. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lýsti yfir áhyggjum af ástandinu í færslu á Twitter fyrr í mánuðinum.
Í umræðum um stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í öryggisráðinu á fimmtudag flutti fastafulltrúi Noregs ræðu fyrir hönd Norðurlanda, Íslands þar á meðal, þar sem gildi hans var áréttað. Í ræðunni gerði norski fastafulltrúinn vaxandi spennu í Mið-Austurlöndum að umtalsefni og undirstrikaði þýðingu þess að allir aðilar yfirstandandi deilu sýndu stillingu, tækju upp viðræður og leituðu friðsamlegra lausna á ágreiningi sínum. Alþjóðasamfélagið yrði að gera það sem í valdi þess stæði til að leggja sitt af mörkum við að finna pólitíska lausn til langframa.
Fyrr í þessum mánuði ræddi Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ólguna í Írak í færslum á Twitter. Í færslu frá 2. janúar lýsti hann yfir áhyggjum af vaxandi spennu og illindum þar og vísaði þar sérstaklega til árása á bandaríska sendiráðið í Bagdad og á herstöðvar í landinu. Daginn eftir áréttaði utanríkisráðherra áhyggjur sínar og hvatti deilendur til að sýna stillingu og leita diplómatískra lausna til að koma í veg fyrir frekari stigmögnun. Hann sagði ennfremur að endurteknar ögranir íranskra stjórnvalda græfu undan friði og stöðugleika í heimshlutanum.
Deeply worried by today's developments in #Iraq. All parties must exercise restraint & seek diplomatic solutions to prevent further escalation. Iran’s repeated provocations in the region are damaging to #peace & #stability. https://t.co/Fx7TY7gc3O
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) January 3, 2020
Deeply concerned about growing violence and tensions in #Iraq, esp attacks on the #US embassy and OIR bases, crucial in the fight against Daesh. Security of diplomatic missions & its staff must never be compromised & all states must abide by their commitments in this regard.
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) January 2, 2020